sunnudagur, maí 15, 2005

Málfríður Guðmundsdóttir er sigurvegarinn!
THME 2005 er lokið og sigurvegarinn er Málfríður Guðmundsdóttir, ég óska henni auðvitað innilega til hamingju með frábæran árangur. Málfríður hlaut 94 stig af 100 mögulegum og verður það að teljast nokkuð gott. Stefnir Kristjánsson var í öðru sæti með 91 stig og svo kom meistari síðustu ára, Einar Gylfi Jónsson, í þriðja sætinu með 80 stig.

Lokastaðan í THME 2005:
1. Málfríður Guðmundsdóttir 94
2. Stefnir Kristjánsson 91
3. Einar Gylfi Jónsson 80
4.-5. Atli Freyr Einarsson 79
4.-5. Björgvin Reynisson 79
6. Sigtryggur Arnar Árnason 64
7. Páll Sævar Guðjónsson 63
8. Albert Jóhannesson 61
9. Guðjón Ingi Guðmundsson 59
10. - 24. Aðrir minna.

Málfríður fær í fyrstu verðlaun 1 stk CD og 1 stk DVD að eigin vali frá Skífunni. Einnig er innifalið í fyrsta sætinu, "kaffi og meððí" á Dalslandsgötunni, það er auðvitað alfarið undir vinningshafanum komið hvort að sú "'úttekt" verði notuð. Sömu sögu er að segja um annað sætið sem á inni kaffi á Dalslandsgötunni og þriðja sætið sem á inni te á sama stað.

Svona í lokin þá þakka ég keppendum fyrir drengilega og góða keppni. Vonandi að fólk hafi haft gaman að þessu, þó að þetta hafi stundum verið svínslegt og erfitt hjá mér.

Góðar stundir,
Hjalti Már Einarsson
10.umferð - svör
Þá er tíundu og síðustu umferð THME 2005 lokið og svörin við umferðinni eru eftirfarandi:

A. Kinks
1. Lazy old sun
2. So long
3. Waterloo sunset
4. Afternoon tea
5. Sunny afternoon
6. Nothing to say
7. Don´t ever change
8. Where have all the good times gone
9. Tired of waiting for you
10. Holiday in Wakiki

B. Blur
1. This is a low
2. You´re so great
3. Tender
4. Dan abnormal
5. No distance left to run
6. She´s so high
7. The Universal
8. Song 2
9. On your own
10. Pressure on Julian

sunnudagur, maí 08, 2005

10. umferð - LOKAUMFERÐ - hlustun
Þá er komið að tíundu og síðustu umferðinni í THME 2005. Ég hvet keppendur til að gefa allt í lokasprettinn og spreyta sig á getraun umferðarinnar. Smellið hér.

Skilafrestur er næstkomandi sunnudag, 15.maí, klukkan 16:00 á dönskum tíma.

Gangi ykkur vel!

fimmtudagur, maí 05, 2005

9.umferð – svör
Þá er níundu og næst síðustu umferð THME 2005 lokið. Ég afsaka biðina með svörin en ég hef verið erlendis frá því síðasta föstudag. Ég minni einnig á að það er viku hlé á keppninni, lokaumferðin hefst næsta sunnudag, 8.maí.

En hér koma rétt svör við 9.umferð:

Hrærigrautur A – 60s og 70s
1. Follow you, follow me – Genesis
2. Sunshine Superman – Donovan
3. You´re so vain – Carly Simon
4. Yeh yeh – Georgie Fame
5. School’s out – Alice Cooper
6. Go now – Moody Blues
7. Hi ho silver lining – Jeff Beck
8. Lífsgleði – Hljómar
9. Turn to stone – ELO
10. Free Bird – Lynyrd Skynyrd

Hrærigrautur B – 80s og 90s
1. A means to an end – Joy Divison
2. Changingman – Paul Weller
3. Skin Deep – Stranglers
4. Last goodbye – Jeff Buckley
5. That what friends are for – Dionne Warwick (ásamt fleirum)
6. Wishing well – Terrence Trent D’Arby
7. Slide away – Oasis
8. Silver – Echo and the bunnymen
9. Birthday (Ammæli) – Sugarcubes (Sykurmolarnir)
10. Hundred of sparrows – Sparklehorse

Það átti að velja annað hvort hrærigraut A eða B. Gefið var 1 stig fyrir rétt lagaheiti og flytjanda (ath, bæði þurftu að vera rétt til að fá 1 stig). Samtals gaf grauturinn 10 stig.

Topp 5 eftir 9.umferð:
Málfríður Guðmundsdóttir 87
Stefnir Kristjánsson 81
Atli Freyr Einarsson 79
Björgvin Reynisson 79
Einar Gylfi Jónsson 72

Lokaumferðin
Tíunda og síðasta umferð THME 2005 hefst á sunnudaginn kemur, 8.maí, og verður hún í formi hlustunar. Skilafrestur er þá sunnudaginn á eftir, 15.maí - og liggja því úrslitin fyrir síðar um kvöldið.

Ljóst er að Málfríður Guðmundsdóttir stendur vel að vígi fyrir lokaumferðina, er 6 stigum á undan Stefni Kristjánssyni í öðru sætinu, en eins og venja er þá er mest hægt að fá 10 stig í einni umferð.

sunnudagur, apríl 24, 2005

9.umferð - hlustun
Næst síðasta umferð THME 2005 er í formi hlustunar. Smellið hér til þess að leysa getraunina.

Skilafrestur er sunnudaginn 1.maí klukkan 16.00 (á dönskum tíma). Sendu mér svarið á tonlistargetraunhme@hotmail.com.

Hlé
Ég minni keppendur á að það verður gert viku hlé á keppninni næsta sunnudag þar sem að ég verð erlendis. Reyndar gæti einnig orðið eitthvað ströggl með að birta svörin við 9.umferð sem og stöðu efstu manna á vefnum vegna þessarar utanlandsferðar minnar. Ég mun vonandi finna út úr því.... en allavega það er skilafrestur fyrir klukkan 16 nk. sunnudag eins og venja er, hitt kemur bara í ljós.
8.umferð - svör
Þá er 8.umferð lokið og því einungis tvær umferðir eftir af THME 2005. Í 8.umferð fórum við í spurningar og var skipti í tvær kategoríur: hljómsveitir og einstaklingar. Hér koma svörin:

Spurt var um hljómsveitir:
1. Stealers Wheel
2. Radiohead
3. The Libertines
4. Human League
5. Hollies
6. Pulp
7. Pretenders

Spurt var um tónlistarmenn/konur:
8. Ian Curtis (úr Joy Division)
9. Leadbelly
10. MC Hammer
11. Joan Baez
12. Chaka Khan
13. Les Paul
14. Roland Gift (úr Fine Young Cannibals)

Í lið 5 svöruðu nokkrir því til að um hafi verið að ræða Bítlana (The Beatles). Sumt í vísbendingunum passaði svo sem við Bítlana, en t.d. ekki að sveitin hafi verið stofnuð í upphafi 7.áratugarins og að gítarleikarinn (sem söng stundum en aðallega raddaði) hafi sagt skilið við sveitina og stofnað tríó sem stundum var kvartett.

Í lið 10 nefndi einhver Billy Ray Cyrus, hann stundaði jú hafnarboltaleik í æsku og stefndi að því að verða atvinnumaður í greininni. Einnig var hann þekktur fyrir eitt stórt lag á 10.áratuginum... en annað passaði ekki, allavega ekki eins vel og við hann MC Hammer.

Topp 5 eftir 8.umferð:
Málfríður Guðmundsdóttir 79
Atli Freyr Einarsson 76
Stefnir Kristjánsson 75
Björgvin Reynisson 71
Einar Gylfi Jónsson 68

sunnudagur, apríl 17, 2005

8.umferð - spurningar
Þá er komið að áttundu umferð THME og í þetta skipti eru það spuringar. Smellið hér til þess að leysa getraunina.

Skilafrestur er sunnudaginn 24.apríl klukkan 16.00 (á dönskum tíma).
7.umferð - svör
Þá er sjöundu umferð THME 2005 lokið og hér koma rétt svör:

1. The Beatles (3 stig)
Mother nature’s son
Strawberry Fields
For no one

2. U2 (3 stig)
Bullet the blue sky
Sunday bloody Sunday
All I want is you

3. Bob Dylan (3 stig)
Tangled up in blue
Mr. Tambourine man
Rainy Day Women #12 & 35

4. Konur (2 stig)
Where have all the cowboys gone – Paula Cole
Puppet on a string – Sandie Shaw

5. Nýlegt frá Íslandi (2 stig)
I want you – Mugison
Jacuzzi Suzy – Brain Police

6. “Gamalt Instrumental” (2 stig)
Sleepwalk – Santo & Johnny
America – The Nice

7. Afturábak (2 stig)
Behind the mask – Eric Clapton
Bat out of hell - Meatloaf

Mest var hægt að fá 10 stig út úr þessu eins og venja er.

Topp 5 eftir sjö umferðir
Málfríður Guðmundsdóttir 69
Atli Freyr Einarsson 67
Stefnir Kristjánsson 65
Björgvin Reynisson 61
Sigtryggur Arnar Árnason 59

Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir af THME 2005 og spennan á toppnum er gríðarleg.

Dagskráin framundan:
Sun. 17. apríl - 8.umferð: Spurningar
Sun. 24. apríl - 9.umferð: Hlustun
Sun. 01.maí - Hlé
Sun. 08.maí - 10.umferð: Hlustun
Sun. 15.maí - ÚRSLIT

sunnudagur, apríl 10, 2005

7.umferð - hlustun
Nú eru aðeins fjórar umferðir eftir af THME 2005 og spennan á toppnum æsispennandi. Sjöunda umferðin snýst um hlustun. Smelltu hér til þess að leysa getraunina.

Skilafrestur er sem fyrr nk. sunnudag, 17.apríl klukkan 16 á dönskum tíma. Gangi ykkur sem best.
6.umferð - svör
Þá er sjöttu umferð THME 2005 lokið. Af svarprósentunni að dæma þá var þessi umferð mjög erfið, svarprósentan var í sögulegu lágmarki, 38% keppenda sáu sér fært um að svara. Þetta er auðvitað ekki nógu gott, en ég játa það, þessi umferð var í þungavigtarflokki. Ljósi punkturinn í þessu er kannski að nú er myndaþáttunum lokið í keppninni, framundan er m.a. hlustun og spurning.

Förum yfir rétt svör við 6.umferð (svörin eru feitletruð):
(sjá myndirnar hér)

A. 1955-1959
1. Hvað heitir maðurinn og hvaða lag gerði dóttir hans vinsælt í lok 8.áratugarins?
Pat Boone. Dóttir hans, Debby, gerði lagið “You light up my life” vinsælt árið 1977.
2. Hvað heita þessir þrír herramenn?
Mike Stoller, Elvis Presley og Jerry Leiber.
3. Hvað heitir maðurinn?
Lonnie Donegan.

B. 1960-1975
4. Hvað heita þessar plötur?
Allar með the Beatles: Rubber Soul, With the Beatles, Abbey Road og Beatles for sale.
5. Þessar sveitir/flytjendur eiga rætur sínar að rekja til einnar ákveðinnar borgar, hverrar?
Koma allir frá London. Frá vinstri: Albert Hammond, Peter & Gordon og Sweet.
6. Um þessa byggingu er sungið í einu ákveðnu lagi á sjöunda áratugnum. Ég spyr um lag og flytjanda?
Winchester Cathedral – New Vaudeville Band
7. Hvaða heita þessar plötur og hverjir fluttu?
Mandala - Trúbrot, Óðmenn - Óðmenn, Change - Change, Mánar - Mánar.

C. 1976 – 1990
8. Hvað heita þessar plötur?
Allar með U2. Frá vinstri: Rattle & Hum, Boy, War og Under a blood red sky.
9. Þessar sveitir/flytjendur eiga rætur sínar að rekja til einnar ákveðinnar borgar, hverrar?
Allar frá Manchester. Frá vinstri: New Order, The Fall og Level 42.
10. Þetta listaverk er að finna í almenningsgarði í austurhluta stórborgar á vesturströnd Bandaríkjanna. Hljómsveit ein frá þessari borg heitir sama nafni og listaverkið. Hvað heitir hljómsveitin?
Soundgarden
11. Hvaða heita þessar plötur og hverjir fluttu?
Frá vinstri: Álfar – Magnús Þór Sigmundsson, Dúbl í horn – Greifarnir, Rising – Mezzoforte, Tívolí - Stuðmenn.

D. 1991-2005
12. Hvað heita þessar plötur?
Allar með REM. Frá vinstri: Up, Out of time, Around the sun og Monster.
13. Þessar sveitir/flytjendur eiga rætur sínar að rekja til einnar ákveðinnar borgar, hverrar?
Öll koma þau frá New York. Frá vinstri: Interpol, Fiona Apple og Sonic Youth.
14. Þetta er atriði úr frægri kvikmynd. Ein ákveðin hljómsveit dregur nafn sitt af drykknum sem kemur við sögu í þessari mynd (drykkurinn sést á myndinni hér að ofan!). Hvað heitir hljómsveitin?
Moloko
15. Hvaða heita þessar plötur og hverjir fluttu?
Frá vinstri: Fólk er fífl – Botnleðja, Æ – Unun (platan hét reyndar Shiny happy people á erlendum markaði, gefið rétt fyrir bæði), Life, death, happiness and stuff – Ske, Jet Black Joe – Jet Black Joe.

Mest var hægt að fá 10 stig í þessari umferð, sem og alltaf.

Topp 5 eftir 6.umferð
Málfríður Guðmundsdóttir 59
Atli Freyr Einarsson 58
Stefnir Kristjánsson 57
Björgvin Reynisson 52
Sigtryggur Arnar Árnason 50

sunnudagur, apríl 03, 2005

6.umferð - myndir
Eftir 2ja vikna hlé þá hefst THME 2005 aftur. Það er komið að 6.umferð og nú snýst þetta um myndir. Smellið hér til þess að leysa getraun vikunnar.

Skilafrestur er næstkomandi sunnudag, 10.apríl, fyrir klukkan 16 að dönskum tíma. Ég vil benda keppendum á að það er kominn sumartími hér í Danaveldi, sem þýðir að það er +2 á milli DK og Íslands.